Guðjónsdagurinn 2016

Guðjónsmótið
Guðjónsmótið

Guðjónsdeginum 2016 verður fagnað laugardaginn 6. febrúar með keppni á Guðjónsmótinu, sem er firma- og hópakeppni, í Iðu og Boltaballi knattspyrnudeildar á Hvítahúsinu um kvöldið. Dagurinn er haldinn í minningu Guðjóns Ægis Sigurjónssonar sem kvaddi þennan heim alltof snemma fyrir sjö árum síðan.

Einungis er hægt að taka á móti 20 liðum í ár þannig að það er um að gera að skrá sig sem fyrst. Uppselt hefur verið á mótið síðustu ár og færri komist að en vilja. Skráning er hjá Sævari í síma 899-0887 eða saevar.thor.gislason@olgerdin.is og Sveinbirni í síma 897-7697 eða knattspyrna@umfs.is.

Veitt verða margvísleg verðlaun að loknu móti og svo verður stanslaust stuð á Boltaballinu í Hvítahúsinu um kvöldið. Vertu með laugardaginn 6. febrúar og taktu þátt í skemmtilegum degi með okkur til minningar um frábæran félaga.

Nýjustu upplýsingar um Guðjónsmótið eru á fésbókarsíðunni Guðjónsmótið/Guðjónsdagurinn 2016.

Nánari upplýsingar um Guðjónsdaginn

Dagurinn hefst laugardaginn 6. febrúar 2016 kl. 9:00 í íþróttahúsinu Iðu með Guðjónsmótinu í knattspyrnu, sem er firma- og hópakeppni.

Mótið allt fer fram í Iðu. Leiktíminn er 1x7 mínútur og verður spilað í riðlum þar sem efsta lið hvers riðils mun komast áfram í undanúrslit. Einungis er löglegt að hafa einn leikmann, sem er með skráðan leik í Íslandsmóti karla 2015 (sama hvaða deild það er) inná í einu. Nánari upplýsingar varðandi reglur mótsins er hægt að fá við skráningu liðs.

Einungis er tekið á móti 20 liðum eða hópum í ár þannig að það er um að gera að skrá sig sem fyrst. Uppselt hefur verið í mótið síðustu ár og færri komist að en vilja. Skráning er hjá Sævari Þór í síma 899-0887 og Sveinbirni í síma 897-7697. Þátttökugjald er kr. 45.000 á lið, og innifalið í því er mótsgjald ásamt 10 miðum á Boltaballið.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess verða verðlaun fyrir bestu búningana og eftirtektaverðasta leikmanninn. Það verður ein nýjung í ár, en það eru verðlaun fyrir besta stuðningsliðið í stúkunni. Þetta er viðburður sem ekki má láta fram hjá sér fara, taumlaus gleði og grín og misgóðir sparksnillingar að reyna fyrir sér í knattspyrnu. Sigurvegarar síðasta árs voru Hótel Selfoss.

Að móti loknu verður stanslaust stuð í Hvítahúsinu á Boltaballinu, styrktarballi knattspyrnudeildarinnar og er stefnt á að hið magnaða BOLTABAND muni halda uppi fjörinu. Það mun verða auglýst betur síðar.

Láttu þig ekki vanta laugardaginn 6. febrúar og taktu þátt í skemmtilegum degi með okkur til minningar um frábæran félaga.

---

Það sáust mörg glæsileg tilþrif á mótinu í fyrra.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Inga Heiða Heimsdóttir