Guðmundur Axel semur við Selfoss

gudmundur_axel150317gk
gudmundur_axel150317gk

Í gær skrifaði Guðmundur Axel Hilmarsson undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.

Guðmundur Axel er á eldra ári í 3. flokki en hefur í vetur verið að stimpla sig inn sem lykilmaður í 2. flokki félagsins. Í síðasta mánuði var hann valinn í U-17 ára landslið Íslands og fór með liðinu til Skotlands þar sem hann tók þátt í þremur leikjum og stóð sig mjög vel.

Við óskum Guðmundi Axel til hamingju með samninginn.

----

Það var Guðmundur Karl sem smellti mynd af nafna sínum að lokinni undirritun samnings.