Handboltamót 6. flokks fer fram á laugardag

Selfoss merki
Selfoss merki

Fjórða mót vetrarins hjá yngra ári í 6. flokk kvenna í handbolta, sem frestað var fyrir hálfum mánuði, verður haldið á Selfossi laugardaginn 28. mars.

Leikið er á tveimur völlum í Iðu íþróttahúsi FSu og einum í íþróttahúsi Vallaskóla. Leikmenn meistaraflokka karla og kvenna sjá um dómgæslu á mótinu. Meistaraflokkar félagsins sjá einnig um sjoppu og mótsstjórn.