Hanna Dóra öflug á sterku móti í Svíþjóð
Hanna Dóra Höskuldsdóttir gerði góða ferð á innanhússkastmót í Växjö í Svíþjóð um helgina. Hún byrjaði á því að bæta sig í kúluvarpi strax eftir 12 klukkustunda langt ferðalag þegar hún kastaði kúlunni 10,68m og endaði í 5.sæti. Í kringlukasti kastaði hún 35,76m sem er nýtt HSK met innanhúss. Frábærlega vel gert hjá Hönnu Dóru en hún var að keppa við mjög marga sterka andstæðinga fyrir framan mjög marga áhorfendur með tilheyrandi stemningu og látum. Hún höndlaði aðstæðurnar mjög vel, stóð sig frábærlega í báðum greinum og verður spennandi að fylgjast með henni í sumar.