Henriette framlengir við Selfoss

Henriette Østergaard - apríl 2020
Henriette Østergaard - apríl 2020

Markmaðurinn Henriette Østergaard framlengdi samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss á dögunum. Henriette, sem er tvítug, kom í fyrra til Selfoss frá Elitehåndbold Aalborg sem er félag í  efstu deild í dönskum kvennahandbolta. Hún hefur leikið lykilhlutverk í meistaraflokk kvenna í vetur og var með yfir 40% markvörslu að meðaltali í vetur.

Handknattleiksdeild Selfoss fagnar því að Henriette skuli velja áfram að vera hér á Selfossi.

---

Mynd: Umf. Selfoss / ÁÞG