Hrafnhildur Hanna skrifar undir nýjan tveggja ára samning

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir hefur undirritað nýjan tveggja ára samning við Selfoss. Hanna hefur verið einn af burðarásum hins unga og efnilega liðs Selfoss í meistaraflokki kvenna. Hún hefur skorað 206 mörk í 36 leikjum með liðinu þau tvö ár sem það hefur leikið í efstu deild.

Í fyrra var Hanna valin efnilegasti leikmaður efstu deildar kvenna á lokahófi HSÍ, eins var hún heiðruð sem markahæsti leikmaður Selfoss og valin sóknarmaður ársins á lokahófi handknattleiksdeildarinnar.

Mikil ánægja er innan félagsins að hafa tryggt Hrafnhildi Hönnu áfram næstu tvö árin og er það liður í áframhaldandi uppbyggingu Selfoss á starfi kvennahandboltans.