Hrvoje Tokic í Selfoss

Screen Shot 2018-07-02 at 11.42.52
Screen Shot 2018-07-02 at 11.42.52

Sóknarmaðurinn Hrvoje Tokic skrifar undir tveggja ára samning við Selfoss og verður löglegur með liðinu þegar félagskiptaglugginn opnar 15. júlí næstkomandi.

Tokic, sem er 27 ára að aldri, hefur leikið á Íslandi frá 2015. Hann lék fyrst með Víkingi Ólafsvík og sló þar í gegn. Eftir það fór hann í Kópavog og spilaði með Breiðablik.

Tokic á að baki 29 leiki í deild og bikar með Ólsurum þar sem hann skoraði 21 mark. Tokic lék þá 33 mótsleiki með Breiðablik og skoraði í þeim 11 mörk.

Nú er hann kominn í Inkasso-deildina en síðast þegar hann lék í henni, árið 2015, skoraði hann 12 mörk í átta leikjum.