Hvalreki á fjörur Selfyssinga

Knattspyrna - Gary Martin
Knattspyrna - Gary Martin

Framherjinn Gary Martin hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.

Gary þarf vart að kynna fyrir knattspyrnuáhugamönnum en hann hefur leikið fyrir ÍA, KR, Víking R, Val og nú síðast ÍBV. Gary er markaskorari að af Guðs náð og kemur til með að styrkja lið Selfoss mikið.

,,Ég er mjög spenntur fyrir þessum nýja kafla á mínum ferli og fullur tilhlökkunar. Ég þekki Dean (þjálfara liðsins) og ég veit að hann mun ná því besta út úr mér. Það eru spennandi tímar í fótboltanum á Selfossi, liðið er nýkomið upp og er að stefna í rétta átt,” segir Gary.

,,Mér finnst Selfoss liðið sjálft spennandi. Leikmennirnir í liðinu eru hæfileikaríkir og það eru margir ungir leikmenn í liðinu sem vilja ná langt.”

Við bjóðum Gary hjartanlega velkominn á Selfoss og við hlökkum til samstarfsins!

Umf. Selfoss/ahm

---

Gary skrifaði undir samning við Selfoss í blíðskaparveðri á pallinum við Kaffi Krús á baráttudegi verkalýðsins.

Ljósmynd: Umf. Selfoss/Arnar Helgi