ÍSLANDSBANKI ÁFRAM AÐALSTYRKTARAÐILI SELFOSS

Knattspyrna - Samningur Íslandsbanki (2)
Knattspyrna - Samningur Íslandsbanki (2)

Knattspyrnudeild Umf. Selfoss og Íslandsbanki skrifuðu undir samning í síðustu viku þess efnis að Íslandsbanki verður áfram aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildarinnar.

Það voru þeir nafnar, Jón Rúnar Bjarnason, útibússtjóri Íslandsbanka á Selfossi, og Jón Steindór Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, sem skrifuðu undir samninginn í útibúi Íslandsbanka á Selfossi.

„Við erum mjög ánægð með að hafa endurnýjað samninginn við Íslandsbanka. Bankinn hefur verið einn traustasti styrktaraðili deildarinnar undanfarna áratugi en hann er einnig viðskiptabanki okkar þar sem við höfum fengið mjög góða þjónustu og öll samskipti hafa verið mjög þægileg" sagði Jón Steindór, formaður að lokinni undirskriftinni.