Íþróttaskóli barnanna hefst á sunnudag

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju sunnudaginn 6. september 2015. Kennt er í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla í alls tíu skipti en síðasta skiptið er sunnudaginn 8. nóvember.

Kennarar eru Steinunn Húbertína Eggertsdóttir kennari og Sigurlín Garðarsdóttir íþróttafræðingur.

Kennt er í tveimur hópum. Hópur 1 sem eru fyrir börn fædd árið 2013 og frá janúar til júní árið 2014 er frá kl. 10:00-10:50. Börn fædd árin 2010, 2011 og 2012 eru í hópi 2 sem er frá kl. 11:00-11:50.

Skráning á staðnum frá klukkan 9:30. Verð krónur 12.000 og svo er 50% systkinaafsláttur. Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn!