Knattspyrnuskólinn hefst 11. júní

Knattspyrnu- og boltaskólinn sumarið 2012

1. Dagsetningar á námskeiðum:
a. Námskeið nr. 1: 11. júní - 22. júní 
b. Námskeið nr. 2: 25. júní - 6. júlí (Boltaskóli fyrir börn fædd 2007-2008, 1 vika 2. - 6. júlí) 
c. Námskeið nr. 3: 9. júlí - 20. júlí 
d. Námskeið nr. 4: 23. júlí - 3. ágúst 
Knattspyrnu- og boltaskólinn er frá kl. 9:30 - 12:00.

2. Aldur
6 - 14 ára (f. 2006 - 1998) 
4 - 5 ára boltaskóli (f. 2007 - 2008) 
Þátttakendum er skipt upp í 8-10 manna hópa eftir aldri og færni.

3. Hvers eðlis námskeiðin eru- innihaldslýsing
Þjálfunin verður einstaklingsmiðuð þar sem aðaláherslan verður á tæknilega færni. Mikið verður lagt upp úr fjölþættum og skemmtilegum æfingum. Áhersla verður lögð á að finna öllum verkefni við hæfi svo allir fái að njóta sín.

4. Símanúmer sem hægt er að hringja í og fá nánari upplýsingar
Auðun Helgason, gsm: 659-0446 og Sveinbjörn Másson, gsm: 897-7697, netfang: knattspyrna@umfs.is

5. Hvar námskeiðin fara fram
Á æfingasvæði Umf. Selfoss, Engjavegi 50

6. Hvenær og hvernig skráningu á námskeið er háttað
Skráning hefst 1. júní nk. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið knattspyrna@umfs.is eða koma við á skrifstofu knattspyrnudeildar í Tíbrá. Einnig er hægt  að mæta og skrá sig daginn sem námskeiðin byrja.

7. Kostnaður námskeiðs
10.000 kr. námskeiðið (5.000 kr. vikan) 
Boltaskóli 5.000 kr. 
Systkinaafsláttur 25% 
Allir fá veglegan æfingabol (innifalið í þátttökugjaldi). Grillveisla í lok hvers námskeiðs.

8. Hverjir séu í ábyrgð fyrir tilteknu námskeiði.
Auðun Helgason yfirþjálfari yngri flokka Selfoss hefur yfirumsjón með knattspyrnuskólanum. Aðrir þjálfarar eru leikmenn meistaraflokks karla og kvenna í knattspyrnu.

Landsliðs- og atvinnumenn í knattspyrnu kíkja í heimsókn og aðstoða við þjálfun.