Kristín Bára nýr formaður Umf. Selfoss

Aðalfundur Umf. Selfoss var haldinn í félagsheimilinu Tíbrá í gærkvöldi. Fundurinn var vel sóttur, en þess má geta að allir kjörnir fulltrúar deilda félagsins, 51 að tölu, mættu á fundinn, auk gesta og velunnara félagsins. Á fundinum var lögð fram vönduð ársskýrsla félagsins, ásamt reikningum og fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Í ræðu formanns kom fram að starfið hefur aldrei verið öflugra og mikil bjartsýni rýkir um áframhaldandi vöxt og enn betri árangur á íþróttasviðinu. Heildarvelta félagsins var tæpar 230 milljónir króna og rekstrarniðurstaða réttu megin við strikið.

Kristín Bára Gunnarsdóttir var kjörin formaður félagsins, en Grímur Hergeirsson lét af embætti eftir tvö ár í formannsstóli. Viktor S. Pálsson kom einnig nýr inn í framkvæmdastjórn. Auk þeirra tveggja eiga sæti í framkvæmdastjórn þau Sveinn Jónsson, Jóhannes Óli Kjartansson og Hróðný Hanna Hauksdóttir.

Mótokrossdeild félagsins fékk afhenta viðurkenningu sem  fyrirmyndardeild ÍSÍ. Þar með hafa allar átta deildir félagsins hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndardeild. Næsta skref verður að fá viðurkenningu fyrir félagið í heild sinni. Þau Fjóla Signý Hannesdóttir og Jón Daði Böðvarsson voru útnefnd íþróttamaður og íþróttakona Umf. Selfoss. Hallur Halldórsson fékk afhentan Björns Blöndal bikarinn og knattspyrnudeild UMFÍ bikarinn. Þá voru þeir Bergur Pálsson og Kjartan Björnsson sæmdir gullmerki félagsins.

Nokkrar tillögur voru samþykktar á aðalfundinum. Má þar nefna þakkir til þeirra sem hafa stutt starf félagsins á árinu, sem og til Sveitarfélagsins Árborgar fyrir veittan stuðning. Samþykkt var áskorun um áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja á Selfossi, tillaga um að efna til átaks gegn munntóbaksnotkun og tillaga um að féla stjórn félagsins að semja og innleiða siðareglur fyrir félagið.

Nokkuð var rætt um komandi Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Selfossi um verslunarmannahelgina. Er mikill hugur í félagsmönnum Umf. Selfoss gera mótið sem glæsilegast og standa vel að öllu er viðkemur félaginu.