Kristinn Þór annar í víðavangshlaupi ÍR

Frjálsar - Kristinn Þór Víðavangshlaup ÍR 2017
Frjálsar - Kristinn Þór Víðavangshlaup ÍR 2017

Kristinn Þór Kristinsson, liðsmaður Umf. Selfoss, varð annar í víðavangshlaupi ÍR sem fór fram í 102. sinn á sumardaginn fyrsta, en hlaupið var jafnframt Íslandsmeistaramót í 5 kílómetra götuhlaupi.

Kristinn Þór varð annar í karlaflokki, en hann hljóp á 15;55 mín. sem er nýtt HSK met í 5 km götuhlaupi. Hann átti sjálfur gamla metið, 16,07 mín., en það var sett í víðvangshlaupi ÍR árið 2012.

Fleiri HSK met féllu þennan dag, en Ástþór Jón Tryggvason, Umf. Selfoss, bætti eigin met í 18-19 ára flokki og 20-22 ára flokki þegar hann kom í mark á 18;18 mín.

---

Kristinn Þór lengst t.h. ásamt Arnari Péturssyni og Benoit Branger sem höfnuðu í þremur efstu sætunum.
Ljósmynd: ÍR