Lið Selfoss í 3. sæti í hópfimleikum á RIG

fimleikar_RIG
fimleikar_RIG

Meistaraflokkur Selfoss í hópfimleikum keppti á Reykjavíkur-leikunum laugardaginn 19. janúar sl. Mótið var haldið í glæsilegu húsnæði Stjörnustúlkna í Garðabæ. Stelpurnar í liði Selfoss keyrðu gott mót, en mótið var m.a. notað til að keyra nokkrar nýjar æfingar og koma þeim af stað inní tímabilið. Liðið er mikið endurnýjað frá síðasta tímabili en kynslóðaskipti eiga sér stað hjá meistaraflokknum þetta árið. Mikill kraftur var í stelpunum enda hafa þær æft vel undanfarið. Það setti þó strik í reikninginn að Helga Hjartardóttir var meidd í hné og gat því ekki stokkið eins margar umferðir og hún hefði átt að gera. Unnur Þórisdóttir er að stíga upp úr meiðslum og dansaði bara og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var ekki með þar sem meistaraflokksleikur í handbolta var á sama tíma. Stelpurnar eiga því heilmikið inni og munu tefla fram sterku liði á Íslandsmótinu í vor. Selfoss-stúlkur höfnuðu í 3. sæti á mótinu, rétt á eftir liði Stjörnunnar, en Evrópumeistarar Gerplu sigruðu, tæpu stigi á undan liði Stjörnunnar. Gerpla sigraði með 53,3 stig, Stjarnan varð í 2. sæti með 52,4 stig og Selfoss í 3. sæti með 49,03 stig. Framundan er skemmtilegur tími en Íslandsmótið í hópfimleikum fer fram 19.–20. apríl næstkomandi. Þar má búast við spennandi keppni þar sem liðin munu berjast um tvö sæti á Norðurlandamóti félagsliða í fullorðinsflokki sem fram fer í Svíþjóð næsta haust. Fyrst verður þó keppt á GK-mótinu í hópfimleikum 5. apríl. Það mun gefa tóninn fyrir sjálft Íslandsmótið.

Mynd: Efri röð frá vinstri: Unnur, Sigrún, Margrét, Katrín Ösp og Helga. Neðri röð frá vinstri: Hugrún Hlín, Þyrí, Rakel Nathalie, Eva, Arna og Hrafnhildur Björk.

-ob/ög