Litháískur landsliðsmarkmaður til Selfoss

Vilius Rasimas
Vilius Rasimas

Litháíski landsliðsmarkmaðurinn Vilius Rašimas hefur gert tveggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss.

Rašimas er þrítugur og reynslumikill markmaður en hann hefur verið í landsliði Litháen síðan 2010.  Hann kemur til Selfoss frá Þýska liðinu EHV Aue, en hann hefur meðal annars leikið með Kaunas í heimalandi sínu og pólsku vinum okkar í Azoty Pulawy.

Handknattleiksdeild Selfoss býður Vilius Rašimas hjartanlega velkominn til okkar og verður gaman að sjá þennan reynda markmann spreyta sig með liðinu í Olísdeildinni í vetur en það er ljóst að hann mun verða liðinu góð styrking.