Lokahóf knattspyrnudeildar

Knattspyrnuslútt 2015
Knattspyrnuslútt 2015

Lokahóf Knattspyrnudeildar Selfoss verður haldið í Hvítahúsinu laugardaginn 19. september.

Þar fagna konur og karlar í meistaraflokki og 2. flokki góðum árangri sumarsins ásamt stuðningsfólki sínu.

Knattspyrnufólk og aðrir velunnarar eru hvattir til að taka daginn frá og enda skemmtilegt fótboltasumar saman. Að loknu borðhaldi mun Stuðlabandið ásamt DJ Búna mæta á sviðið og trylla fótalipra stuðbolta fram eftir nóttu.

Forsala miða fer fram hjá Guðfinnu í síma 899-7752 og Þóru í síma 893-2844.