Minningarhátíð Magnúsar Arnars

Iðkendur fimleikadeildarinnar sem fengu viðurkenningar í Minningarhátíðinni. Frá vinstri: Hinrik Jarl, Birgir Árni, Eiður Hilmar, Birta Rós, Helga Sonja, Kristín María og Victoria Ann.
Iðkendur fimleikadeildarinnar sem fengu viðurkenningar í Minningarhátíðinni. Frá vinstri: Hinrik Jarl, Birgir Árni, Eiður Hilmar, Birta Rós, Helga Sonja, Kristín María og Victoria Ann.

Laugardaginn 31. maí fór fram árleg Minningarhátíð Magnúsar Arnars. Magnús Arnar var þjálfari hjá fimleikadeildinni en hann lést í mótorhjólaslysi árið 1990, aðeins tvítugur að aldri. Hann var sonur Garðar Garðarssonar og Valborgar Árnadóttur en þau stofnuðu fimleikadeildina á sínum tíma.
Minningarhátíðin er jafnframt uppskeruhátíð fimleikadeildarinnar, þar sem allir iðkendur deildarinnar koma fram og sýna afrakstur vetrarins, auk þess sem við veitum viðurkenningar fyrir veturinn.

Við hlökkum alltaf mikið til þessa dags, þar sem við eigum öll saman góða stund og í ár fengum við einnig sirkusatriði í lok hátíðarinnar sem var sérstaklega skemmtilegt. Líkt og í fyrra bauð Nettó upp á ávexti fyrir alla iðkendur og yngstu iðkendurnir okkar fengu viðurkenningarskjal. Í lok sýningar voru veittar viðurkenningar fyrir lið ársins, framför og ástundun, efnilegasta unglinginn og fimleikakonu og fimleikamann ársins.

Helga Sonja Matthíasdóttir - félagi ársins, 

Birta Rós Einarsdóttir - framför og ástundun stúlkna og Hinrik Jarl Aronsson - framför og ástundum drengja.

Kristín María Kristjánsdóttir - efnilegasti unglingur stúlkna, Birgir Árni Sigmundsson, efnilegasti unglingur drengja

Eiður Hilmar Sigmundsson, fimleikamaður ársins og Victoria Ann Vokes, fimleikakona ársins

 

Lið ársins var að þessu sinni heill flokkur en 4. flokkurinn okkar er sérlega fjölmennur og samanstendur af duglegum og skemmtilegum iðkendum sem eru full af áhuga!

Eftir að sýningu lauk voru grillaðar pylsur í boði Pylsuvagnsins.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og yngri iðkendum fyrir veturinn.
Skráning fyrir haustönnina hefst í ágúst :)

Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Íslandsbanka, Hótel Geysi, Bílverk BÁ, HSH þrif og flutninga og HP kökugerð.
Sérstakir styrktaraðilar Minningarhátíðarinnar voru Eimskip, Pylsuvagninn og Nettó og þökkum við þeim kærlega fyrir.