Námskeið Ólympíuakademíunnar í Grikklandi

Olympiuhringirnir
Olympiuhringirnir

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 23. maí til 6. júní nk. Að þessu sinni er þemað Ólympíuhreyfingin og sérstök áhersla er lögð á endurnýjun og aðlögun.

Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum Ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Umsækjendur skulu hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en mánudaginn 23. febrúar nk. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu ÍSÍ. Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.

Umsókn skal skilað á ensku og skulu fylgja henni tvær passamyndir.

Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 514 4000.

Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org og www.ioa.org.gr.