Ný námskeið hefjast á mánudag

Ungmennafélag Selfoss mun í sumar bjóða upp á fimm fjölbreytt og skemmtileg tveggja vikna sumarnámskeið fyrir hressa krakka fædd árin 2005-2010. Annað námskeið sumarsins hefst nk. mánudag og verður staðsett í Vallaskóla.

Allar nánari upplýsingar og skráningar má fá hjá Má Ingólfi umsjónarmanni klúbbsins í netfanginu sumarnamskeidumfs@gmail.com eða í síma 868-3474. Einnig er hægt að skrá börnin í klúbbinn á staðnum.

Þá minnum við einnig á að annað knattspyrnunámskeið sumarsins hefst nk. mánudag og kallast námskeiðið „Atvinnumannanámskeið“ en á hvert námskeið koma góðir gestir bæði landsliðsmenn, atvinnumenn og leikmenn sem spila fyrir meistaraflokka Selfoss.

Skráning og frekari upplýsingar um námskeið deildarinnar eru á netfanginu knattspyrna@simnet.is.