TRS og Handknattleiksdeild Selfoss hafa undirritað nýjan samstarfssamning.
Um langt skeið hefur TRS verið einn af styrktaraðilum deildarinnar og hlakkar handknattleiksdeildin til áframhaldandi góðs samstarfs við TRS. Sem fyrr byggir starf deildarinnar á góðum stuðningi samstarfsaðila og því er mikill akkur í samstarfi við öflugt fyrirtæki á borð við TRS.