Nýtt námskeið hefst mánudag 18. júlí

Íþrótta- og útivistarklúbbur 2015 006
Íþrótta- og útivistarklúbbur 2015 006

Nýtt tveggja vikna námskeið í íþrótta- og útivistarklúbbnum, sem er fyrir öll börn fædd 2006-2011, hefst á mánudag en klúbburinn býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumaranámskeið fyrir hressa krakka.

Námskeiðið hefst mánudaginn 18. júlí og lýkur 29. júlí. Hægt er að velja heilan dag með hollum og góðum hádegismat eða hálfan dag, fyrir eða eftir hádegi allt eftir því hvað hentar fólki.

Íþrótta- og útivistarklúbburinn er staðsettur í Vallaskóla og er gengið inn um inngang við eldhús á milli íþróttahúss og gervigrasvallar (Eikatúns).

Allar nánari upplýsingar og skráningar má fá hjá Hilmari Guðlaugssyni og Sigrúnu Örnu Brynjarsdóttur umsjónarmönnum klúbbsins í netfanginu sumarnamskeidumfs@gmail.com eða í síma 698-0007 eða á heimasíðu Umf. Selfoss www.umfs.is. Einnig er hægt að skrá börnin í klúbbinn á staðnum.

Við hlökkum til að hitta hressa krakka í sumar.