Öllu mótahaldi í handbolta frestað

HSI
HSI

Vegna hertra aðgerða til að sporna við útbreiðslu Covid-19 og tilmæla sóttvarnarlæknis og Almannavarna um að gert verði hlé á íþróttastarfi ákvað stjórn HSÍ á fundi sínum í dag að fresta mótahaldi í öllum aldursflokkum til og með 19. október nk., staðan verður endurmetin að þeim tíma liðnum.

Mælst var til þess af sóttvarnarlækni að íþróttastarf yrði stöðvað og með þessari ákvörðun vill HSÍ leggja sitt á vogarskálarnar í varnarbaráttunni gegn Covid-19 og því ástandi sem er í samfélaginu.

Enn er beðið eftir nánari útskýringum heilbrigðisráðuneytis á þeim reglum sem þegar hafa verið gefnar út þegar kemur að æfingum og mun skrifstofa HSÍ senda frekari upplýsingar þegar þær berast.

Þetta þýðir það að a.m.k átta leikjum meistaraflokka verði eða hafi þegar verið frestað:

þri 6. okt: Haukar - Selfoss (Coca Cola-bikar karla)
mið 7. okt: Selfoss U2 - Víkingur U (2. deild karla)
sun 11. okt: Selfoss - Fjölnir/Fylkir (Grill 66 deild kvenna)
mán 12. okt: ÍR - Selfoss (Olísdeild karla)
fös 16. okt: Víkingur - Selfoss U (Grill 66 deild karla)
fös 16. okt: Vikingur - Selfoss (Grill 66 deild kvenna)
sun 18. okt: Selfoss  - ÍBV (Olísdeild karla)
sun 18. okt: ÍR U - Selfoss U2 (2. deild karla)