Paris Open Taekwondo 2014

Danni og Ingibjörg
Danni og Ingibjörg

10. TOURNOI INTERNATIONAL DE PARIS - WTF G1

Helgina 22. og 23. nóvember munu Daníel Jens Pétursson og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir keppa á þessu firna sterka móti í París. Mótið er flokkað sem WTF G-1 sem telur til „ranking“ stiga.

Í flokki Daníels eru 29 keppendur samtals frá sautján löndum og sumir þeirra kepptu á Ólympíuleikunum í London 2012 þannig að þetta verður gríðarlega erfið barátta og mikil reynsla fyrir okkar mann.

Í flokki Ingibjargar Erlu eru 33 keppendur frá fimmtán löndum og þar á meðal heims- og Evrópumeistarar. Við vitum að við ramman reip er að draga en allt færist þetta í reynslubankann og á góðum degi á Ingibjörg Erla í fullu tré við hverja sem er.

Stjórn Taekwondodeildar Selfoss óskum okkar fólki góðs gengis og góðrar ferðar.

Áfram Selfoss!

PJ