Perla Ruth og Elvar Örn íþróttafólk Árborgar 2018

Elvar og Perla 2018
Elvar og Perla 2018

Þau Perla Ruth Albertsdóttir og Elvar Örn Jónsson voru kosin íþróttakona og íþróttakarl Árborgar árið 2018, annað árið í röð. Kjörinu var lýst á verðlaunahátíð íþrótta- og menningarnefndar Árborgar í hátíðarsal FSu í gærkvöldi. Sérstök valnefnd stóð fyrir kjörinu ásamt netkosningu, en hún gilti 20% á móti valnefndinni, yfir 1.000 atkvæði bárust með netkosningunni. Perla Ruth sigraði með 68 stigum, önnur í kjörinu varð frjálsíþróttakonan Hulda Sigurjónsdóttir úr Suðra með 52 stig. Elvar Örn sigraði með 94 stigum og á eftir honum kom júdómaðurinn Egill Blöndal með 74 stig.

Perla Ruth var í lykilhlutverki hjá kvennaliði Selfoss í handbolta sem náði sínum besta árangri á síðasta tímabili og varð í 6. sæti Olís-deildarinnar. Henni hefur gengið vel á yfirstandandi tímabili og verið fjórum sinnum valin í lið umferðarinnar í fyrstu níu umferðunum. Hún er í 6. sæti yfir sterkustu leikmenn deildarinnar miðað við HB statz tölfræðina. Perla Ruth er orðin fastamaður í A-landsliðinu í handbolta og skilar ávallt miklu framlagi inni á vellinum.

Elvar Örn er sömuleiðis lykilmaður í karlaliði Selfoss í handbolta sem náði sínum besta árangri í sögunni á síðasta tímabili þegar liðið varð í 2. sæti í Olís-deildinni og féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins. Á yfirstandandi tímabili hefur Elvar Örn verið valinn í lið umferðarinnar fjórum sinnum í fyrstu tíu umferðunum en Selfoss er í toppbaráttunni í deildinni. Hann lék mjög stórt hlutverk í Evrópuleikjum Selfoss í haust og hefur verið valinn í öll verkefni A-landsliðsins á þessu ári.

---

Elvar Örn og Perla Ruth á verðlaunaafhendingunni.
Ljósmynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl Sigurdórsson