Ragnarsmótið hefst á morgun

Ragnarsmót 2020 Facebook event
Ragnarsmót 2020 Facebook event

Ragnarsmótið í handbolta verður haldið í 32. skiptið, en mótið er eitt elsta og virtasta æfingamót á Íslandi.

Mótið fer fram í Hleðsluhöllinni og verður mótið tvískipt eins og undanfarin ár. Á Ragnarsmóti kvenna keppa fjögur lið, ásamt heimamönnum munu Fjölnir/Fylkir, ÍR og Haukar keppa í einum riðli. Sex lið taka þátt í Ragnarsmóti karla, en það eru Selfoss, ÍBV, Stjarnan, Fram, Afturelding og Haukar. Vegna COVID-19 verða engir áhorfendur leyfðir á mótið. Handboltaþyrstir þurfa engu að kvíða, enda verður SelfossTV með alla leiki í þráðbeinni og geta allir horft á hann í leiftrandi háskerpu á heimasíðu SelfossTV.  Linkar á leikina munu einnig birtast á Facebook ásamt nýjustu upplýsingum, stöðu, úrslitum o.s.frv.  

Dagskráin er eftirfarandi:

Ragnarsmót kvenna
Selfoss, Fjölnir/Fylkir ,Haukar, ÍR 

Sunnudagur 16. ágúst
kl 16:00 Selfoss -  Fjölnir/Fylkir

Mánudagur 17. ágúst
kl 20:15 Haukar - Fjölnir/Fylkir

Fimmtudagur 20. ágúst
kl 20:30 Selfoss - Haukar

Föstudagur 21. ágúst
kl 20:30 Fjölnir/Fylkir - ÍR

Laugardagur 22. ágúst
kl 10:00 Haukar - ÍR

Mánudagur 24. ágúst
kl 19:45 Selfoss - ÍR

Ragnarsmót karla
A-riðill: Fram - Haukar - Selfoss
B-riðill:Afturelding - ÍBV - Stjarnan

Þriðjudagur 18. ágúst
kl 17:45 Selfoss - Fram
kl 20:30 Stjarnan - Afturelding

Miðvikudagur 19. ágúst
kl 17:45 ÍBV - Afturelding
kl 20:30 Fram - Haukar

Fimmtudagur 20. ágúst
kl 17:45 Selfoss - Haukar

Föstudagur 21. ágúst
kl 17:45 Stjarnan - ÍBV

Laugardagur 22. ágúst
kl 12:45 Leikur um 5. sæti
kl 15:30 Leikur um 3. sæti
kl 18:15 Úrslitaleikur

*Birt með fyrirvara um breytingar.