Selfoss með gull og brons í fimleikum á Reykjavíkurleikunum

Fimleikadeild Selfoss sendi tvö lið til keppni á Reykjavíkurleikana í hópfimleikum 21. janúar sl. Keppt var annars vegar í Teamgym í opnum flokki, þar sem allir kepptu við alla óháð aldri, og hins vegar var keppt aldurskipt í landsreglum.

Selfoss sendi unglingaliðið sitt til keppni í Teamgym, en liðið reynir að ná inn á Norðurlandamót juniora sem haldið verður í Svíþjóð 21. apríl nk. Stelpurnar í Selfossliðinu áttu ágætis dag í keppninni og voru áberandi flottar á trampólíni og í dansi, en þær hlutu hæstu einkunn unglingaliða á mótinu á þessum tveimur áhöldum. Dýnan var ekki hrein hjá þeim og verður að vinna stíft í æfingum á dýnu fyrir unglingamótið sem haldið verður á Selfossi 11. febrúar næstkomandi. Á unglingamótinu er einmitt úrtakan fyrir Norðurlandamótið. Þurfa stúlkurnar að lenda í öðru af efstu tveimur sætunum til að ná inn á Norðurlandamótið. Liðið hafnaði í 3. sæti á RIG á eftir meistaraflokkum Gerplu og Stjörnunnar. Unglingalið Gerplu varð í 4. sæti og unglingalið Ármanns í 5. sæti.

Selfoss HL1, sem er 3. flokks lið Selfoss, keppti í landsreglum. Áttu þær góðan dag á dýnu og dansi, en áttu ekki gott trampólín. Þær voru þó áberandi flottar og sigruðu mótið með glæsibrag. Þetta mót er liður í undirbúningi þeirra fyrir unglingamótið, en þar keppast þær við að vera Íslandsmeistarar unglinga í 3. flokki sem er flokkur 15-18 ára. Mótið um helgina gaf góðar vísbendingar um komandi keppnistímabil hjá Selfossliðunum.

-ob

Unglingalið Selfoss í dansi . Liðið keppir í Teamgym og reynir við lágmörk fyrir NMJ.

Lið Selfoss HL1 sem sigraði með glæsibrag í landreglum á Reykjavíkurleikunum.