Selfyssingar bikarmeistarar

handbolti-4-fl-kk-bikarmeistarar
handbolti-4-fl-kk-bikarmeistarar

Strákarnir á eldra ári í 4. flokki Selfoss urðu bikarmeistarar er þeir unnu ÍR í úrslitaleik í gær. Selfoss komst yfir snemma leiks og hélt forystunni allan leikinn. ÍR-ingar sýndu þó mikla baráttu allan leikinn og gáfust aldrei upp. Lokatölur urðu 28-20 fyrir Selfoss.

Selfyssingurinn Haukur Þrastarson var valinn maður leiksins en hann skoraði 15 mörk í leiknum. Aðrir markarskorarar Selfoss voru Daníel Karl Gunnarsson 3, Gunnar Flosi Grétarsson 3, Sölvi Svavarsson 2, Þorsteinn Freyr Gunnarsson 2, Haukur Páll Hallgrímsson 1, Bergsveinn Vilhjálmur Ásmundsson 1 og Daníel Garðar Antonsson 1.

---

Strákarnir voru sigurreifir í leikslok.
Haukur var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins.
Ljósmyndir: HSÍ/Magnús Kári Jónsson

handbolti-4-fl-kk-haukur-thrastarson