Selfyssingar Gatorade meistarar!

Selfyssingar urðu í kvöld Gatorade meistarar í knattspyrnu karla.

Eftir 3-1 sigur gegn Haukum í hörkuleik á Laugardalsvelli endurtóku Selfyssingar leikinn frá 2023.

Eysteinn Ernir Sverrisson jafnaði leikinn 1-1 á 26' mínútu eftir að Haukar höfðu komist yfir. Frosti Brynjólfsson kom síðan okkar mönnum í 2-1 á 72' mínútu.

Það var síðan markavélin Viðar Örn Kjartansson sem innsiglaði sigurinn á 93' mínútu og 3-1 staðreynd.

Frábær endir á flottu fótboltasumri hjá meistaraflokkunum okkar.

Áfram Selfoss!