IMG_4417
Keppni lauk í 3.flokki á Íslandsmóti unglinga í gær. Selfyssingar tefldu fram tveimur liðum í þeim flokki. Annað liðið keppti í A-deild og átti þar í harðri keppni við lið Stjörnunnar sem hafði betur og uppskáru okkar stúlkur silfur. Þessar stúlkur eru að mestum meirihluta á yngra ári í flokknum og má því segja að framtíðin sé björt. Lið Selfoss 2 keppti B-deild og bætti sig um rúmlega heilan í samanlögðum stigum og enduðu í 7. sæti. Flott hjá stelpunum sem einnig eru að meiri hluta á yngra ári í flokknum. Keppnin heldur áfram í dag í yngri flokki drengja, 5. flokki stúlkna sem og 2. flokki stúlkna. Má búast við skemmtilegri keppni í þessum flokkum. Hægt er að fylgjast með úrslitum inná score.sporteventsystems.se
![](/wp-content/uploads/2015/02/IMG_4417-300x222.jpg)
Silfurstúlkur Selfoss 1 í 3. flokki
![](/static/files/frettamyndir/cad4a1ddd6b825c230dbb5f0f9932e0d.jpg)
Lið Selfoss 2