Starfsfólk í íþrótta- og útivistarklúbbinn

Selfoss_merki_2012
Selfoss_merki_2012

Eins og undanfarin ár verður Íþrótta- og útivistarklúbburinn, sem er fyrir öll börn fædd 2008-2012, í fullum gangi í sumar. Klúbburinn er starfræktur á vegum Ungmennafélags Selfoss í góðu samstarfi við Sveitarfélagið Árborg.

Klúbburinn býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir hressa krakka. Markmið námskeiðanna er fjölbreytileiki og skemmtileg hreyfing með mikilli útiveru og íþróttum í góðum félagsskap. Börnin fá að kynnast sem flestum íþróttagreinum og stefnt er að því að þau nái betri líkamlegri færni og eflist félagslega. Lögð er áhersla á að börnin skemmti sér á námskeiðunum.

Ungmennafélagið Selfoss leitar eftir góðum félagsmönnum sem hafa áhuga á að starfa í klúbbnum í sumar.

Viðkomandi þarf meðal annars að vera uppátækjasamur, stundvís, áreiðanlegur og sjálfstæður í vinnubrögðum.
Mestu máli skiptir þó að viðkomandi hafi brennandi áhuga á að leika sér með börnum, spila og finnist gaman að hoppa í pollum.
Lágmarksaldur umsækjenda er 18 ára á árinu.

Vinnutími er á milli kl. 8 til 17 alla virka daga. Ráðningartími er frá 11. júní til 17. ágúst.

Umsóknarfrestur er til 13. apríl 2018.

Allar óskir um nánari upplýsingar og umsóknir skal komið til Óttars og Sesselju Önnu umsjónarmanna klúbbsins í netfangið sumarnamskeidumfs@gmail.com eða í síma 849-2866.