Stigunum skipt á Akureyri

Hergeir Grímsson
Hergeir Grímsson

Meistaraflokkur karla gerði í kvöld jafntefli við KA í hörkuleik á Akureyri.  Leikurinn var hluti af þrettándu umferð Olísdeildarinnar og endaði 24-24.

Selfyssingar byrjuðu leikinn af krafti og voru komnir 2-5 yfir eftir tíu mínútna leik.  Þá skiptu KA menn upp um gír og náðu að jafna leikinn.  Selfyssingar héldu svo frumkvæðinu áfram út hálfleikinn þar sem staðan var 11-13.  Seinni hálfleikur byrjaði nákvæmlega eins og sá fyrri endaði og héldu Selfyssingar áfram að skora á undan.  Á 45. mínútu komust heimamenn svo yfir, 18-17.  Þeir virtust ekki ætla að sleppa tökum á því forskoti og virtust ætla að taka bæði stigin.  Þegar tæpar 10 sekúndur voru eftir á klukkunni skoraði Hergeir svo sitt ellefta mark og tryggði Selfyssingum jafnteflið, lokatölur 24-24.

Mörk Selfoss: Hergeir Grímsson 11/2, Ragnar Jóhannsson 7, Alexander Már Egan 3, Nökkvi Dan Elliðason 2, Magnús Öder Einarsson 1.

Varin skot: Vilius Rasimas  16 (41%)

Nú tekur við landsliðsvika og fá strákarnir langþráða hvíld.  Næsti leikur þeirra verður fimmtudaginn 18. mars þegar Afturelding kemur í heimsókn.


Mynd: Hergeir Grímsson átti frábæran leik, öflugur í vörn og með 11 mörk.
Umf. Selfoss / SÁ