Styðjum strákana í úrslitakeppninni

Elvar Örn Jónsson
Elvar Örn Jónsson

Framundan er úrslitakeppni Olísdeildarinnar en Selfyssingar hefja leik í Hleðsluhöllinni laugardaginn 20. apríl þegar þeir taka á móti ÍR í fyrsta leik liðanna kl. 17:00. Liðin mætast svo aftur í Breiðholti mánudaginn 22. apríl kl. 19:30 og ef á þarf að halda verður oddaleikur liðanna spilaður á heimavelli Selfyssinga miðvikudaginn 24. apríl kl. 19:30.

Við hvetjum Selfyssinga til að fjölmenna á leikina og styðja strákana okkar til sigurs.