Þorsteinn nýr framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar

Þorsteinn Rúnar
Þorsteinn Rúnar

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur ráðið Þorstein Rúnar Ásgeirsson sem framkvæmdastjóra félagsins.

Þorsteinn er góðu kunnur í félaginu en hann hefur verið viðloðandi starf handknattleiksdeildarinnar allt frá árinu 2012 þegar hann kom inn í stjórn deildarinnar og hefur setið þar síðan, þar hefur hann sinnt bæði starfi formanns og gjaldkera. Þorsteinn mun víkja úr stjórn og mun Sandra Dís Hafþórsdóttir taka við sem gjaldkeri deildarinnar.

Deildin er gríðarlega ánægð með ráðningu Þorsteins og er þetta hluti af því að bæta og efla starf deildarinnar.