Þorsteinn undir smásjá Brentford

Svavar og Þorsteinn
Svavar og Þorsteinn

Greint var frá því á vef Sunnlenska.is að forráðamenn enska knattspyrnuliðsins Brentford hafi beðið um að fá Selfyssinginn Þorstein Daníel Þorsteinsson aftur til reynslu til félagsins.

Þorsteinn fór til Brentford ásamt Svavari Berg Jóhannssyni í október síðastliðnum og í kjölfarið barst beiðni frá félaginu um að skoða Þorstein betur. Hann fór út í dag ásamt framherjanum Magnúsi Inga Einarssyni og verða þeir í eina viku. Meðal annars verður sérstaklega settur upp leikur með 21 árs liði félagsins til þess að skoða Þorstein. 

Selfoss og Brentford eiga í samstarfi í leikmannamálum og hafa Selfyssingar reglulega farið út til Brentford síðustu mánuði. Sömuleiðis hafa Selfyssingar skoðað leikmenn frá Brentford og hefur þegar verið samið um að miðjumaðurinn Montrell Moore muni leika með Selfyssingum næsta sumar.

---

Svavar og Þorsteinn í skrúða Brentford í haust.
Mynd: sunnlenska.is/Þóra S. Jónsdóttir.