Þorvaldur Gauti bætti 36 ára gamalt HSK met

Þorvaldur Gauti raðar inn HSK metum
Þorvaldur Gauti raðar inn HSK metum

Þorvaldur Gauti Hafsteinsson Umf Selfoss stóð sig frábærlega á fyrsta móti Nike- mótaraðar FH sem haldið var í Kaplakrika þann 12.janúar.  Hann hljóp 800 m hlaup á tímanum 2:01,55 mín og setti HSK met, bæði í flokkum 16-17 ára og 18-19 ára. Í flokki 16-17 ára bætti hann met Goða Gnýs Guðjonssonar um 4,36 sek og í flokki 18-19 ára bætti hann 36 ára gamalt met Gunnlaugs Karlssonar um 0,25 sek.  

Þorvaldur Gauti varð í 3. sæti í hlaupinu í karlaflokki  en hann er einungis á 16 ári.  Frábær árangur hjá Þorvaldi Gauta og jafnframt er þetta 6.besti árangur ársins i 800m hlaupi í karlaflokki.  Þorvaldur Gauti er í fantaformi og til alls líklegur á komandi keppnistímabili.