Tvö HSK met á Vormóti ÍR

Frjálsar - Dagur Fannar og Hildur Helga (1)
Frjálsar - Dagur Fannar og Hildur Helga (1)

Tvö HSK met voru sett á Vormóti ÍR, sem haldið var í Reykjavík 13. júní sl.

Hulda Sigurjónsdóttir úr Suðra varð í þriðja sæti í kvennaflokki og bætti ársgamalt HSK met sitt hjá fötluðum í flokki F20. Hulda kastaði 24,63 metra, en gamla metið var 24,13.

Dagur Fannar Einarsson sem keppir fyrir Selfoss setti nýtt HSK met í 400 metra grindahlaupi (9,4 cm) í flokki 16 – 17 ára. Hann hljóp á 58,49 sek. og varð annar í karlaflokki. Tungnamaðurinn Róbert Einar Jensson átti metið, en hann hljóp á 60,6 sek. fyrir 26 árum síðan.

Fleiri sunnlendingar tóku þátt og náðu verðlaunasætum í sínum greinum, það voru þær Thelma Björk Einarsdóttir, Hildur Helga Einarsdóttir, Fjóla Signý Hannesdóttir og Eva María Baldursdóttir.

Úrslit greina eru á www.fri.is

Úr fréttabréfi HSK