UMFÍ bikarinn afhentur

UMFÍ bikarinn 2019
UMFÍ bikarinn 2019

Á aðalfundi Umf. Selfoss, þar sem árið 2019 var gert upp og tókst loks að halda í fjarfundi miðvikudaginn 16. desember síðastliðinn, var tilkynnt að handknattleiksdeild og knattspyrnudeild deildu UMFÍ bikarnum sem deildir ársins hjá félaginu fyrir árið 2019.

Öllum er í fersku minni Íslandsmeistaratitill í handknattleik og bikarmeistaratitill í knattspyrnu sem unnust árið 2019 og taldi stjórn félagsins ómögulegt að gera upp á milli þessara stærstu afreka í sögu félagsins.

Það þótti við hæfi að Viktor Pálsson formaður Umf. Selfoss afhenti Þóri Haraldssyni, formanni handknattleiksdeildar, og Jóni Steindóri Sveinssyni, formanni knattspyrnudeildar, UMFÍ bikarinn við heimili þeirra en svo skemmtilega vill til að þeir búa hlið við hlið í Grundunum á Selfossi.

Við óskum handknattleiksdeild og knattspyrnudeild til hamingju með árangurinn um leið og við þökkum fyrir gott starf.

---

F.v. eru Þórir, Viktor og Jón Steindór.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur