Ungmennafélag Selfoss í samstarfi við Sideline Sport

Samningur við Sideline
Samningur við Sideline

Ungmennafélag Selfoss og Sideline Sports hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning um notkun félagsins á hugbúnaði frá Sideline Sports. Fyrirtækið hefur um árabil boðið íþróttafélögum um allan heim upp á hugbúnað sem nýtist vel við skipulagningu á íþróttastarfi og til leikgreiningar.

Nýr samningur á milli Selfoss og Sideline Sports gerir öllum þjálfurum Selfoss kleift að vinna með Sideline í sínu starfi sem mun hjálpa félaginu við efla umgjörð, skipulag og gæði í kringum íþróttastarf félagsins.

Jafnframt mun Selfoss taka í notkun nýjan samskiptahluta í vörulínu Sideline. Samskiptahlutinn er ekki síst mikilvægur en með honum geta þjálfarar, iðkendur og forráðamenn haft yfirsýn með starfi Selfoss í gegnum app í snjallsíma eða spjaldtölvu. Með Sideline appinu (XPS) verður með einföldum hætti hægt að hafa yfirsýn yfir æfingar, mætingar og margt fleira. Þjálfari getur með einföldum hætti sent út tilkynningar og haft samskipti við iðkendur eða forráðamenn. Með því að taka í notkun þessa nýjung frá Sideline gefst félaginu tækifæri á að efla verulega upplýsingagjöf til iðkenda og forráðamanna.

Markmiðið með innleiðingu á þessum samskiptahluta er að draga verulega út notkun á hópsíðum á fésbókinni sem mörg íþróttafélög hafa reitt sig á til að halda utan um íþróttastarf flokka. Notkun á samskiptahluta Sideline Sports er þegar farinn af stað innan nokkurra deilda Umf. Selfoss. Innleiðing Sideline mun eiga sér stað á næstu misserum og verður ekki endanlega lokið fyrr en haustið 2021.

---

Gissur Jónsson framkvæmdastjóri Umf. Selfoss (t.h.) og Kjartan Orri Sigurðsson frá Sideline Sports handsala samstarfssamninginn að viðstöddum hópi iðkenda úr 5. flokki í knattspyrnu.
Ljósmynd: Umf. Selfoss