Viltu styrkja Umf. Selfoss með frádráttarbærum styrk?

Á heimasíðu Umf. Selfoss má nú finna upplýsingar um frádráttarbæra styrki til íþróttafélaga og hvernig einstaklingar og fyrirtæki geta stutt við starf félagsins.

Umf. Selfoss er stórt fjölgreinafélag þar sem þúsundir iðkenda taka þátt í íþróttastarfi á hverju ári. Starfið byggir á öflugum deildum, góðu sjálfboðastarfi og mikilvægum stuðningi frá samfélaginu. Með því að styrkja félagið er hægt að leggja sitt af mörkum til að efla íþróttastarf barna, ungmenna og fullorðinna á Selfossi.

Á síðunni eru allar helstu upplýsingar um hvernig styrkir til íþróttafélaga geta nýst þeim sem vilja styðja við starfið. Þar er einnig reiknivél þar sem hægt er að skoða með einföldum hætti hvaða áhrif slíkur styrkur getur haft á skattalegan ávinning.

Við hvetjum félagsmenn, velunnara og fyrirtæki til að kynna sér málið og skoða hvort þessi leið geti hentað þeim.

Smelltu hér til að lesa meira og prófa reiknivélina:
https://www.selfoss.net/is/felagsmenn/fradrattarbaerir-styrkir-til-ithrottafelaga#styrkja