Vorfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ

ISI-logo
ISI-logo

Vorfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 17. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám sem er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár. Það veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði.

Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Það jafngildir áfanganum ÍÞF 1024 sem kenndur er í framhaldsskólum landsins. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 14. febrúar. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is.

Vorfjarnám 2. og 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun svo hefjast mánudaginn 24. febrúar nk.