Æfingar falla niður til 23. mars

Íþróttahreyfingin og COVID-19
Íþróttahreyfingin og COVID-19

Í ljósi nýrra tilmæla sem bárust frá íþróttahreyfingunni á Íslandi í gærkvöldi (sunnudag 15. mars) hefur verið tekin ákvörðun um að íþróttastarf hjá iðkendum Umf. Selfoss á leik- og grunnskólaaldri hefst ekki fyrr en í fyrsta lagi mánudaginn 23. mars. Eru þessi tilmæli byggð á samskiptum íþróttahreyfingarinnar við landlækni, sóttvarnarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Tlkynning frá ÍSÍ

Tilkynning frá UMFÍ

Aðstæður breytast fljótt þessa dagana og þess vegna er erfitt að segja hvernig næstu vikur líta út en forsvarsmenn félagsins og deilda þess vinna hörðum höndum að því að halda þjónustu félagsins gangandi meðan samkomubannið er í gildi.

Stefnt er að því að hefja æfingar hjá öllum deildum mánudaginn 23. mars og verður vikan notuð til að skipuleggja fyrirkomulag æfinga þannig að þær uppfylli skilyrði stjórnvalda gagnvart samkomubanni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag æfinga hjá einstaka deildum félagsins verða sendar til foreldra og forráðamanna í síðasta lagi um næstu helgi.

Þjálfarar deilda félagsins munu leggja sig fram við að búa til krefjandi en skemmtilegar heimaæfingar fyrir yngri iðkendur og vera í beinu sambandi við þá í gegnum Sideline (XPS) eða aðrar samskiptaleiðir sem notaðar eru innan félagsins.

Ljóst er að æfingar verða með breyttu formi og munu taka mið af leiðbeiningum og ákvörðunum stjórnvalda hverju sinni.

Leggur félagið ríka áherslu á að lokaákvörðun um að senda iðkendur á æfingar er ávallt undir hverju og einu foreldri/forráðamanni komið.

Frétt af vef UMFÍ - Ekki tíminn til að taka neina áhættu

Mikilvægt er að allir fari eftir tilmælum yfirvalda í einu og öllu til að hefta útbreiðslu veirunnar.

Aðalstjórn Umf. Selfoss