Egill á Evrópumeistaramóti juniora

Egill Haustmót 2013
Egill Haustmót 2013

Egill Blöndal keppti um seinustu helgi á Evrópumeistaramóti Juniora (U21 árs) í Oberwart í Austurríki.

Keppendur voru fjölmargir eða 396 frá 41 þjóð. Þetta var gríðarsterkt mót, sennilega eitt allra sterkasta mót sem Egill hefur tekið þátt í. Meðal keppenda voru verðlaunahafar frá stórmótum seniora (fullorðina).

Í fyrstu umferð mætti Egill keppanda frá Austurríki sem hann gerði sér lítið fyrir og vann á ippon með armlás. Í annari umferð varð hann að játa sig sigraðan gegn keppanda frá Rússlandi sem er margverðlaunaður á stórmótum um allan heim og lenti í þriðja sæti á þessu Evrópumeistaramóti. Egill komst ekki áfram í þriðju umferð.

Mótið fer í reynslubankann og mætir hann sterkari á þetta mót á næsta ári.