Fimm verðlaun á RIG - Egill með gull

Júdó - RIG 2021 Selfyssingar
Júdó - RIG 2021 Selfyssingar

Allir fimm keppendur Selfoss unnu til verðlauna á Reykjavíkurleikunum um seinustu helgi og sýndu glæsileg tilþrif.

Egill Blöndal sigraði í -90 kg flokki og Úlfur Þór Böðvarsson hafnaði í öðru sæti í sama flokki Vésteinn Bjarnason nældi í silfur í -66 kg flokki á sínu fyrsta móti í flokki fullorðinna. Jakob Tomczyk fékk brons í -73 kg flokki eftir mikla keppni og Breki Bernhardsson fékk einnig brons í -81 kg.

bp

---

F.v. eru Selfyssingarnir Jakob, Breki, Egill, Úlfur og Vésteinn.
Ljósmynd: Umf. Selfoss