Fjögur gull á Íslandsmóti

Júdó - Vésteinn Bjarnason
Júdó - Vésteinn Bjarnason

Góður árangur náðist á Íslandsmóti yngri flokka í júdó sem haldið var laugardaginn 29. maí. Þar voru mættir sextíu keppendur frá sjö félögum, þar af voru sex keppendur frá júdódeild Selfoss og kepptu þrír þeirra í bæði U18 og U21.

Keppnin var jöfn og spennandi og mikið var um glæsileg tilþrif. Allir keppendur stóðu sig glæsilega en Vésteinn bar af og varð tvöfaldur Íslandsmeistari. Hann glímdi sex viðureignir og vann þær allar örugglega.

Vésteinn Bjarnason varð Íslandsmeistari bæði í U18 og U21 í –66 kg flokki. Jakub Tomczyk varð Íslandsmeistari í U18 -73 kg flokki og í 3. sæti í U21. Böðvar Arnarsson varð Íslandsmeistari í U18 í -90 kg flokki og 2. sæti í U21. Hrafn Arnarsson varð í 2. sæti í -100 kg í U21. Styrmir Hjaltason varð í 2. sæti í -66 kg í U15. Fannar Júlíusson varð í 2. sæti í -55 kg í U15.

---

Vésteinn (fyrir miðju) varð tvöfaldur Íslandsmeistari í U18 og U21.
Ljósmynd: Umf. Selfoss