Mikil festa í starfi júdódeildar

Júdó - Íslandsmót Egill Blöndal og Þór Davíðsson
Júdó - Íslandsmót Egill Blöndal og Þór Davíðsson

Fram kom á aðalfundi júdódeildar, sem fór fram í Tíbrá sl. fimmtudag, að mikil festa er í starfsemi deildarinnar. Iðkendum fjölgar ár frá ári, góður árangur náðist á mótum bæði innanlands sem utan og er fjárhagur deildarinnar afar traustur. Stjórn deildarinnar var öll endurkjörin á fundinum.

---

Þór Davíðsson (t.v.) og Egill Blöndal eru meðal Íslandsmeistara deildarinnar á seinasta ári.
Ljósmynd úr safni Umf. Selfoss