Sumarnámskeið í júdó

judo-hsk-mot
judo-hsk-mot

Í júní býður júdódeild Selfoss upp á fjölbreytt námskeið þar sem blandað er saman skemmtilegum leikjum og styrktaræfingum í bland við grunnkennslu í júdó. Júdó eykur þol, fimi, styrk og eflir sjálfstraust. Hentar báðum kynum, bæði byrjendum og þeim sem hafa verið í júdó áður.

Umsjónarmaður námskeiðanna er Einar Ottó Antonsson íþróttafræðingur og 1. kyu

Námskeiðið stendur yfir frá 15. júní - 3. júlí. Kennt verður i júdósalnum í Sandvíkurskóla (á móti Sundhöll Selfoss) mánudaga til fimmtudaga fjórum sinnum í viku, samtals tólf skipti.

Tímasetningar:
Börn fædd 2013-2014 klukkan 8:00 – 9:00
Börn fædd 2010-2012 klukkan 9:15 – 10:15
Börn fædd 2007-2009 klukkan 10:30 – 11:30

Verð fyrir námskeiðið er kr. 8.000.

Skráning í gegnum netfangið judoselfoss@gmail.com eða í síma 862 2201.