Tómstundamessa í Árborg

Sveitarfélagið Árborg byggðamerki
Sveitarfélagið Árborg byggðamerki

Fimmtudaginn 31. ágúst mun Sveitarfélagið Árborg standa fyrir svokallaðri „Tómstundamessu" í íþróttahúsinu Vallaskóla í samstarfi við grunnskóla, íþróttafélög, æskulýðsfélög og aðra aðila sem vinna með tómstundir barna á leik- og grunnskólaaldri í sveitarfélaginu.

Öllum aðilum sem vinna með frítíma barna og unglinga fá tækifæri til að kynna starfið sitt fyrir nemendum í grunnskólum Árborgar og elstu bekkjum leikskóla og foreldrum þeirra. Má þar nefna meðal annars frítímastarf skáta, björgunarsveita, tónskóla, félagsmiðstöðvar og kirkju auk þess sem fjölmargar íþróttagreinar verða kynntar.

Kynningarnar verða tvíþættar. Annars vegar verður kynning fyrir öllum nemendum grunnskóla sveitarfélagsins á milli kl. 10:00 - 14:00 en starfsfólk grunnskólanna mun fylgja krökkunum yfir í íþróttahús Vallaskóla.

Hinsvegar verður opin kynning á milli kl. 15:30 og 18:30 þar sem við vonumst eftir fjölmenni foreldra og annarra forráðamanna í fylgd barna sinna. Allir eru velkomnir en við bjóðum börn á grunnskólaaldri sem og börnum í elstu deildum leikskóla sérstaklega velkomin ásamt foreldrum og forráðamönnum þeirra.

Jafnframt verður hægt að ganga frá skráningu og greiðslu á námskeið vetrarins. Allir iðkendur Umf. Selfoss sem ganga frá greiðslu æfingagjalda fyrir lok ágústmánaðar fá gjöf frá ungmennafélaginu.

Ekki láta þetta tækifæri framhjá ykkur fara til að kynnast öllu því tómstundastarfi sem er í boði fyrir barnið þitt í Sveitarfélaginu Árborg.