Auður Inga Þorsteinsdóttir nýr framkvæmdastjóri UMFÍ

Auður Inga Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands  og tekur við starfinu frá og með 1. júní næstkomandi.

Auður Inga er fædd árið 1978 og hefur undanfarin níu ár verið framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins Gerplu í Kópavogi. Áður var hún deildarstjóri á tveimur leikskólum í Noregi og þar á undan gegndi hún starfi yfirþjálfara hjá Gerplu. Þá hefur Auður einnig þjálfað fimleika hjá Gerplu og hjá Kolbotn í Noregi.

Auður Inga lauk B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 2002 og útskrifast í júní með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Auður Inga var valin úr hópi ríflega sjötíu umsækjenda en Hagvangur aðstoðaði stjórn UMFÍ við ráðningarferlið. Hún tekur við starfinu af Sæmundi Runólfssyni sem gegnt hefur því í rúm 23 ár.

Umf. Selfoss óskar Auði Ingu til hamingju með starfið og þakkar Sæmundi fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum árum.

Greint var frá þessu á heimasíðu UMFÍ.