Beltapróf og innanfélagsmót helgina 8. og 9. mars

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Laugardaginn 8. mars verður haldið beltapróf í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Prófið byrjar stundvíslega klukkan 13:00 og við byrjum að prófa lægstu beltin.

Verð fyrir gula rönd er kr. 2,500- Verð fyrir gult belti upp í grænt er kr. 3,500- og blátt belti og hærra kostar kr. 4,500-

Daníel Jens setur upp próflista í næstu viku og þeir sem eru á þeim lista eru að fara í þetta próf.

Sunnudaginn 9. mars verður svonefnt vinamót á vegum Taekwondoakademíunnar haldið í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Mótið byrjar klukksn 10:00 og við munum byrja á yngstu keppendunum þ.e. 11 ára og yngri. Allir iðkendur eru hvattir til að skrá sig til leiks.

Skráningarblöð verða afhent á æfingum í vikunni. Skráningarfrestur er til 3. mars.

Nánari tímasetningar auglýstar þegar skráningar liggja fyrir og hægt er að raða keppndum niður.

Þátttökugjald er kr. 1,500- sem er rétt fyrir kostnaði.