Bikarmót unglinga - Skipulag

Fimleikar bikarmót 2016
Fimleikar bikarmót 2016

Um komandi helgi fer fram stærsta hópfimleikamót á Íslandi frá upphafi en keppendur eru orðnir yfir 1.000. Fimleikadeild Selfoss sendir 15 lið til keppni eða rúmlega 160 keppendur.

Dagskráin verður stíf frá morgni til kvölds og má búast við skemmtilegri keppni í öllum flokkum en margir eru að stíga sín fyrstu spor á keppnisgólfinu. Á meðfylgjandi mynd eru skottur sem kepptu í fyrsta skipti á FSÍ móti í fyrra og eru að mæta aftur til leiks reynslunni ríkari.

Þess ber að geta að á föstudaginn keppir 1. flokkur Selfoss í kvennaflokki en hann er að berjast um sæti á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem haldið verður í Danmörku 16. apríl næstkomandi. Þær enduðu í þriðja sæti á Wow-mótinu um síðustu helgi og dugar ekkert annað en sigur á mótinu á föstudaginn til að tryggja sér þátttöku.

Við hvetjum alla Selfyssinga til að mæta í stúkuna í Gerplu að Versölum og styðja við bakið á stelpunum okkar því það mun klárlega skila sér inn til þeirra á gólfið. Keppnin í 1. flokki hefst á föstudaginn klukkan 19:20.

Hér má finna heildarskipulag fyrir bikarmótið um helgina

ÁFRAM SELFOSS!